Launþegum í byggingariðnaði fjölgaði um 16%

Í apríl voru 2.478 launagreiðendur og um 11.500 launþegar í …
Í apríl voru 2.478 launagreiðendur og um 11.500 launþegar í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og hafði launþegum fjölgað um 1.600 eða um 16% samanborið við apríl 2016. mbl.is/Styrmir Kári

Launþegum hefur fjölgað í byggingariðnaði og ferðaþjónustu en fækkað í sjávarútvegi síðasta árið. Frá maí 2016 til apríl 2017, voru að jafnaði 17.079 launagreiðendur á Íslandi og hafði þeim fjölgað um 790 eða 4,8% frá síðustu 12 mánuðum á undan. Á sama tímabili greiddu launagreiðendur að meðaltali um 182.800 einstaklingum laun sem er aukning um 8.500 eða 4,9% samanborið við 12 mánaða tímabil ári fyrr.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Í apríl voru 2.478 launagreiðendur og um 11.500 launþegar í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og hafði launþegum fjölgað um 1.600 eða um 16% samanborið við apríl 2016. Sömuleiðis voru í mars 1.614 launagreiðendur og um 25.100 launþegar í einkennandi greinum ferðaþjónustu og hafði launþegum fjölgað um 3.400 eða um 16% á einu ári. Launþegum hefur á sama tíma fjölgað um 8.500 eða um 5%.

Hagstofan bendir þó á að í þessum tölum eru ekki upplýsingar um einyrkja sem eru með rekstur á eigin kennitölu og greiða sjálfum sér laun, en slíkt rekstrarform er algengt í byggingariðnaði, landbúnaði, hugverkaiðnaði og skapandi greinum svo dæmi séu tekin.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK