Ómar með tilboð á öðrum vettvangi

Ómar tók við starfi framkvæmdastjóra hjá Sjóvá í janúar 2015 …
Ómar tók við starfi framkvæmdastjóra hjá Sjóvá í janúar 2015 en starfaði sem framkvæmdastjóri sölu og þjónustusviðs Vodafone frá árinu 2005 og sem forstjóri frá 2009. mbl.is/Ómar Óskarsson

Ómar Svavarsson, framkvæmdastjóri sölu og ráðgjafar hjá Sjóva hefur sagt starfi sínu lausu en honum hefur boðist starfstilboð á öðrum vettvangi.

Þetta kemur fram í tilkynningu Sjóvár til Kauphallarinnar.

Ómar tók við starfi framkvæmdastjóra hjá Sjóvá í janúar 2015. Ómar starfaði sem framkvæmdastjóri sölu og þjónustusviðs Vodafone frá árinu 2005 og sem forstjóri frá 2009, en hann starfaði hjá Sjóvá frá 1995 til 2005. Ómar mun láta af störfum á næstu dögum en málefni  sölu og ráðgjafar munu tímabundið heyra undir Hermann Björnsson, forstjóra Sjóvá.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK