Áslaug og Hrefna í framkvæmdastjórn Meniga

Hrefna og Áslaug eru meðal reynslumestu starfsmanna félagsins að sögn …
Hrefna og Áslaug eru meðal reynslumestu starfsmanna félagsins að sögn forstjóra Meniga. Aðsend mynd

Áslaug S. Hafsteinsdóttir og Hrefna Lind Ásgeirsdóttir hafa tekið sæti í framkvæmdastjórn Meniga.

Áslaug hefur verið ráðin framkvæmdastjóri innleiðingaþjónustu Meniga en undir sviðið falla öll innleiðingarverkefni og þjónusta við viðskiptavini félagsins.

Áslaug hefur starfað sem verkefnastjóri og deildarstjóri hjá Meniga frá árinu 2011. Hún starfaði áður við áhættustýringu hjá Landsbankanum árin 2005-2011. Áslaug útskrifaðist með BS gráðu í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1996.

Hrefna Lind Ásgeirsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri hugbúnaðarþróunar hjá Meniga en undir sviðið fellur öll hugbúnaðarþróun félagsins.

Hrefna Lind hefur gegnt ýmsum lykilstörfum hjá Meniga frá árinu 2012, nú síðast starfi vörustjóra.Áður starfaði hún sem forritari hjá Landbankanum og Advania á árunum 2006-2011. Hrefna Lind útskrifaðist með BS gráðu í hugbúnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 2006 og meistaragráðu í Design & Digital Media frá Edinborgarháskóla árið 2010.

„Það er mikill fengur fyrir okkur að fá Hrefnu og Áslaugu í framkvæmdastjórn Meniga. Þær eru meðal reynslumestu starfsmanna félagsins og njóta mikils trausts hjá stjórnendum og starfsmönnum þess. Ég er því sannfærður um að þær muni styrkja stjórnendateymið og hlakka til að sjá þær takast á við þau fjölmörgu spennandi og krefjandi verkefni sem framundan eru hjá okkur,“ er haft eftir Georgi Lúðvíkssyni, forstjóra og einum stofnenda Meniga í fréttatilkynningu.

Meniga var stofnað árið 2009 og eru starfsmenn í dag rúmlega 90.

„Meniga er leiðandi í þróun heimilisfjármála- og netbankalausna fyrir banka og fjármálafyrirtæki. Lausnir félagsins eru kjarninn í næstu kynslóð netbanka og eru notaðar til að stórauka þjónustu við viðskiptavini,“ segir í fréttatilkynningu en hugbúnaður Meniga hefur verið innleiddur hjá rúmlega 70 fjármálastofnunum og hann aðgengilegur 50 milljón manns í 20 löndum. Meðal við­skipta­vina Meniga eru margir stærstu banka heims en þeirra á meðal eru Sant­ander, Commerz­bank, ING Direct og Intesa San­pa­olo.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK