Dagur fagnaði afmæli Coca-Cola á Íslandi

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, opnar sýningu í tilefni af 75 …
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, opnar sýningu í tilefni af 75 ára afmæli Coca-Cola á Íslandi sem haldin er í fundarsalnum Vífilfelli. Við hlið hans stendur Carlos Cruz, forstjóri Coca-Cola á Íslandi. Ljósmynd/Lárus Karl Ingason

Í dag opnaði Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, ljósmyndasýningu úr sögu Coca-Cola European Partners Íslands, sem áður hét Vífilfell, í tilefni 75 ára afmælis fyrirtækisins.

Vífilfell var stofnað í Reykjavík í júní 1942 og í tilefni af afmælinu tók fyrirtækið saman ljósmyndir úr sögunni sem varpa skemmtilegu ljósi á hversu samofið Coke er samtímamenningu okkar, en einnig fjölmargir aðrir drykkir sem Coca-Cola European Partners Ísland (Coca-Cola á Íslandi) framleiðir.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Dagur kynnti  sér jafnframt starfsemi fyrirtæisins, einkum þó sjálfbærnistefnu þess, og heimsótti meðal annars framleiðslusal og vatnshreinsistöðina Hreinsu.

Dagur tók fram að ánægjulegt væri að heimsækja verksmiðjuna því hann ólst upp í næsta nágrenni við hana en þess utan sé Reykjavíkurborg ávallt tilbúin til að starfa með fyrirtækjum að mótun framtíðar. „Coca-Cola á Íslandi er til fyrirmyndar þegar kemur að umhverfismálum og var sérlega áhugavert að kynnast sjálfbærnisstefnu fyrirtækisins, vatnshreinsistöðinni og nýútgefinni skýrslu um árangur í umhverfismálum.“

 Carlos Cruz, forstjóri Coca-Cola á Íslandi, sagðist stoltur af því sem fyrirtækið hefði áorkað á síðustu 75 árum en fyrirtækið er stærsti drykkjaframleiðandi landsins og býður upp á mikið og fjölbreytt úrval drykkja. „Við erum sérstaklega stolt af því að hafa auðnast að styðja við ýmis samfélagsverkefni, lagt okkar af mörkum til efnahagslífsins og ekki síst af því sem við höfum áorkað í umhverfismálum. Sjálfbærni snýst um að búa börnum okkar og barnabörnum betri framtíð og með hana að leiðarljósi vonumst við til að næstu 75 ár verði álíka giftusamleg og hin fyrstu.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK