Jóna Soffía til Landsvirkjunar

Jóna Soffía er viðskiptafræðingur frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst og rekstrarfræðingur …
Jóna Soffía er viðskiptafræðingur frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst og rekstrarfræðingur frá Samvinnuháskólanum á Bifröst. Aðsend mynd

Jóna Soffía Baldursdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður upplýsingatæknisviðs hjá  Landsvirkjun.

Í fréttatilkynningu segir að upplýsingatækni leiki stórt hlutverk í rekstri Landsvirkjunar. Nýr forstöðumaður heyrir undir skrifstofu forstjóra og mun í samvinnu við stjórnendur taka þátt í að móta framsæknar upplýsingatæknilausnir fyrir fjölbreytta starfsemi innan Landsvirkjunar.

Jóna Soffía hefur mikla reynslu af stjórnun og störfum við upplýsingatækni. Hún hefur verið forstöðumaður vefþróunar hjá Símanum frá árinu 2013 en starfað hjá Símanum frá árinu 2006, fyrst við verkefnastjórnun og síðar sem deildarstjóri stjórnstöðvar og stjórnkerfa áður en hún tók við sem forstöðumaður vefþróunar. Áður en Jóna Soffía fór til Símans starfaði hún m.a. við verkefnastjórnun og hugbúnaðarráðgjöf hjá Högum hf. og Hug hf. og við flutningastýringu hjá Samskipum.

Jóna Soffía er viðskiptafræðingur frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst og rekstrarfræðingur frá Samvinnuháskólanum á Bifröst.

Jóna Soffía er gift Bjarka Jóhannssyni og eiga þau tvær dætur.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK