Norðurlöndin skara fram úr

Ísland er í fyrsta sæti allra landanna þegar kemur að …
Ísland er í fyrsta sæti allra landanna þegar kemur að umburðarlyndi og aðgengi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Danmörk er í fyrsta sæti 128 ríkja heims í vísitölu félagslegra framfara, VFF, sem stofnunin Social Progress Imperative (SPI) reiknar út. Fast á hæla Danmerkur koma hin Norðurlöndin, Finnland í öðru sæti, Ísland og Noregur deila þriðja sætinu og í áttunda sæti er Svíþjóð.

Niðurstöður SPI í rannsóknum stofnunarinnar verða kynntar í dag.

Snýst ekki bara um hagvöxt

Michael Green, forstjóri Social Progress Imperative, segir í samtali við Morgunblaðið, að ef stjórnvöld í hverju landi hugsi aðeins um aukinn hagvöxt og aukna landsframleiðslu og vinni bara út frá því séu þau ekki á réttri braut.

„Það er ekki hægt að móta stefnu til framtíðar án þess að leggja ríka áherslu á félagslegar framfarir, meðfram áherslu á aukinn hagvöxt,“ sagði Green.

Green segir það ánægjulegt hversu hátt skor Ísland fær í rannsókninni og óskar landsmönnum til hamingju með það.

Ísland er í fyrsta sæti allra landanna þegar kemur að umburðarlyndi og aðgengi. Mismunun og ofbeldi gagnvart minnihlutahópum mælist hér minnst á heimsvísu. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK