Gyða nýr markaðsstjóri Viðskiptafræðideildar

Gyða lauk MBA námi við Háskóla Íslands árið 2014 og …
Gyða lauk MBA námi við Háskóla Íslands árið 2014 og Markaðssamskiptum við Háskólann á Bifröst árið 2012.

Gyða Hlín Björnsdóttir hefur verið ráðin markaðs- og kynningarstjóri Viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands.

Í tilkynningu kemur fram að víðtæk reynsla Gyðu af markaðs- og rekstrarmálum bæði innan háskólans og á almennum vinnumarkaði muni nýtast deildinni vel, en hún hefur yfir 12 ára starfsreynslu á þessu sviði. Hún lauk MBA námi við Háskóla Íslands árið 2014 og Markaðssamskiptum við Háskólann á Bifröst árið 2012. Gyða situr í stjórn Stjórnvísi auk þess að vera í stjórn í sjávarútvegsfyrirtækinu Valafelli ehf. Gyða er 38 ára gömul og er gift Georg Andersen. Þau eiga samtals fimm börn á aldrinum 10 til 21 árs.

Að sögn Inga Rúnars Eðvarðssonar deildarforseta Viðskiptafræðideildar er ráðning Gyðu liður í að efla enn betur samstarf deildarinnar við atvinnulífið enda ein af fjölmennustu deildum Háskólans og munu verkefni Gyðu verða m.a. að móta markaðsstefnu deildarinnar og sinna markaðs- og kynningarmálum fyrir allar þær námsleiðir sem deildin bíður upp á en við deildina stunda um 1300 nemendur nám á 12 sérsviðum, doktorsnámi auk grunnáms.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK