Landsbankinn fær lán upp á 7,8 milljarða

Þetta er annað lánið sem Norræni fjárfestingabankinn veitir Landsbankanum. Fyrra …
Þetta er annað lánið sem Norræni fjárfestingabankinn veitir Landsbankanum. Fyrra lánið, sem samþykkt var árið 2015, hefur að fullu verið endurlánað í samræmi við stefnu Norræna fjárfestingabankans. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Norræni fjárfestingabankinn og Landsbankinn hafa skrifað undir nýjan 7 ára lánasamning að upphæð 75 milljónum Bandaríkjadala eða því sem nemur 7,8 milljörðum íslenskra króna um til að endurlána til lítilla og meðalstórra fyrirtækja og umhverfistengdra verkefna á Íslandi.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Hið 7 ára lán verður notað til að fjármagna lítil og meðalstór fyrirtæki í ýmsum atvinnugreinum, svo sem fiskveiðum og -vinnslu, almennum iðnaði, ferðamanna iðnaði og byggingar atvinnuhúsnæðis. Einstakar lánveitingar úr sjóðnum verða ákveðnar á grunni þess hve vel þær falla að því markmiði Norræna fjárfestingabankans að efla samkeppnishæfni og bæta umhverfi aðildarríkja bankans.

Þetta er annað lánið sem Norræni fjárfestingabankinn veitir Landsbankanum. Fyrra lánið, sem samþykkt var árið 2015, hefur að fullu verið endurlánað í samræmi við stefnu Norræna fjárfestingabankans.

„Samstarf okkar við Landsbankann við að ná til lítilla og meðalstórra íslenskra fyrirtækja hefur verið mjög árangursríkt, og það gleður okkar að halda því áfram með nýju láni,“ er haft eftirHenrik Normann, forstjóra Norræna fjárfestingabankans.

„Lánasamningurinn við NIB rennir styrkari og fjölbreyttari stoðum undir erlenda fjármögnun Landsbankans. Með samningnum er staðfest, enn og aftur, að bankinn nýtur aukins trausts meðal erlendra lánveitenda. Samvinnan við NIB hefur verið árangursrík og mun hún halda áfram að koma viðskiptavinum okkar til góða ásamt því að styðja vel við samfélagsstefnu bankans,“ er haft eftir Lilju Björk Einarsdóttur, bankastjóra Landsbankans.

Norræni fjárfestingabankinn er alþjóðleg fjármálastofnun í eigu aðildarlandanna átta: Danmerkur, Eistlands, Finnlands, Íslands, Lettlands, Litháen, Noregs og Svíþjóðar. Bankinn lánar til opinberra verkefna og einkaverkefna jafnt innan sem utan aðildarríkjanna. Norræni fjárfestingarbankinn fær hæstu mögulega lánshæfiseinkunn, AAA/aaa, hjá leiðandi matsfyrirtækjum, Standard & Poor’s og Moody’s.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK