Sádi-Arabinn Hassan Jameel, sem á að vera nýbyrjaður með söngkonunni Rihanna, er metinn á 1,5 milljarð Bandaríkjadala eða því sem nemur 154 milljörðum íslenskra króna. Fjölskylda Jameel er ein ríkasta fjölskylda heims en fjölskyldufyrirtækið Abdul Latif Jameel, á m.a. stærstan hlut í bílaframleiðandanum Toyota.
Myndir af Rihanna og Jameel birtust fyrr í vikunni þar sem mátti sjá þau láta vel af hvor öðru í sundlaug. Á söngkonan að vera „sjúklega ástfangin“ af auðkýfingnum.
Jameel er varaforseti og varastjórnarformaður í fjölskyldufyrirtækinu. Þá á hann í gegnum fjölskyldu sína ekki heilt knattspyrnulið heldur heila knattspyrnudeild, eða Abdul Latif Jameel deildina.
Rihanna er þó ekki fyrsta stjarnan sem Jameel sést með. Síðasta sumar sást hann ásamt ofurfyrirsætunni Naomi Campell á tónleikum með Stevie Wonder í Lundúnum. Seint á síðasta ári hættu Rihanna og Campell að fylgja hvort annari á Instagram og nú velta slúðurmiðlar sér fyrir því hvort það tengist Jameel.