Rafmagnið 100% endurnýjanleg orka

Landsvirkjun.
Landsvirkjun. mbl.is/Jón Pétur

Allt rafmagn sem Landsvirkjun vinnur og afhendir á almennan markað, sem sölufyrirtækin selja áfram til heimila, stofnana og smærri fyrirtækja, er nú vottað sem 100% endurnýjanleg raforka.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Landsvirkjun. Landsvirkjun kynnti þetta á ársfundi í vor og sagði uppbygginguna lið til að berjast gegn loftslagsbreytingum. Upprunaábyrgðir væru liður í viðleitni Evrópusambandsins til að berjast gegn loftslagsbreytingum.

„Upprunaábyrgðir eru sjálfstæð söluvara, óháð afhendingu á raforkunni sjálfri. Upprunaábyrgðakerfið gerir kaupendum raforku í Evrópu kleift að styðja við vinnslu á endurnýjanlegri orku, en notkun hennar hefur í för með sér mun minni losun gróðurhúsalofttegunda en notkun jarðefnaeldsneytis. Kerfinu er ætlað að vera fjárhagslegur hvati fyrir orkufyrirtæki til endurnýjanlegrar orkuvinnslu með það að markmiði að auka framleiðslu endurnýjanlegrar orku í Evrópu og þar með hafa jákvæð áhrif á losun gróðurhúsalofttegunda,“ segir í tilkynningunni.

Með samstarfi við sölufyrirtæki, sem selja raforku áfram til heimila og almennra fyrirtækja á Íslandi, vill Landsvirkjun stuðla að því að sem flestir almennir raforkunotendur, heimili og fyrirtæki á Íslandi, getið notið góðs af því að fá alþjóðlega viðurkennda vottun með upprunaábyrgðum á raforkunotkun,“ segir enn fremur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK