„Óhófleg útgjöld“ formannsins ástæða uppsagna

Ólafur Arnarson.
Ólafur Arnarson. mbl.is/Árni Sæberg

Helsta ástæða þess að öllu starfsfólki Neytendasamtakanna var sagt upp eru óhófleg útgjöld sem formaður samtakanna, Ólafur Arnarson, hefur efnt til án aðkomu stjórnar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu stjórnar samtakanna á heimasíðu þeirra.

Þegar stjórn varð ljóst hver staðan var lýsti hún yfir vantrausti á formanninn og skoraði á hann að stíga til hliðar. Þá hefur starfsfólk samtakanna einnig lýst yfir vantrausti á formann og biðlað til hans að segja af sér,“ segir í yfirlýsingunni.

Enn fremur kemur fram að þrátt fyrir að formanni hafi verið gerð grein fyrir alvarleika málsins, sem hann beri mikla ábyrgð á, sitji hann sem fastast. Aðgerðir þurfi til að bjarga samtökunum og það er mat starfsmanna og stjórnar að slíkt verði ekki gert með formanninn innanborðs.

Stjórn hefur nú þegar gripið til aðgerða til að takmarka aðgang formanns að daglegum rekstri. Hann er ekki lengur starfsmaður skrifstofu og hefur ekki heimildir til að skuldbinda samtökin né að efna til nokkurra útgjalda af hálfu þeirra,“ segir stjórnin og bætir við:

Stjórn og starfsfólk vinnur samhent að því að koma Neytendasamtökunum aftur á réttan kjöl enda er mikilvægi þeirra fyrir þjóðfélagið óumdeilt.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK