Nýir starfsmenn hjá VÍS

mbl.is/Styrmir Kári

VÍS hefur fengið þrjá einstaklinga til liðs við sig sem ætlað er samkvæmt fréttatilkynningu að styrkja enn frekar þjónustu fyrirtækisins við viðskiptavini sína á fyrirtækjamarkaði.

Bjarni Guðjónsson hefur verið ráðinn í starf viðskiptastjóra með áherslu á sjávarútveg í fyrirtækjaráðgjöf VÍS. Bjarni er með BS-próf í viðskipta- og markaðsfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hann hefur starfað sem sölustjóri sjávarútvegsteymis hjá Odda en áður var hann aðalþjálfari KR og Fram í úrvaldsdeild karla og verslunarstjóri hjá Ellingsen. Bjarni er fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu og á fjölmarga landsleiki að baki auk þess að eiga góðan feril sem atvinnumaður í Englandi og Belgíu. Bjarni er giftur Önnu Maríu Gísladóttur og eiga þau þrjú börn á aldrinum 3 - 14 ára. Bjarni kemur til starfa til VÍS 1. ágúst.

Bjarni er með BS-próf í viðskipta- og markaðsfræði frá Háskólanum …
Bjarni er með BS-próf í viðskipta- og markaðsfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

Elfa Björk Erlingsdóttir hefur verið ráðin í starf fyrirtækjaráðgjafa í fyrirtækjaráðgjöf VÍS. Elfa Björk er með meistarapróf í markaðsfræðum og alþjóðaviðskiptum frá Háskóla Íslands. Hún hefur starfað hjá Sjóvá frá árinu 2009 m.a. sem ráðgjafi hjá Sjóvá Líf, ráðgjafi á tjónasviði vegna ökutækja og persónutrygginga og staðgengill fræðslustjóra. Áður vann hún hjá tollstjóranum í Reykjavík. Elfa Björk er fyrrverandi landsliðskona í fótbolta og spilaði í mörg ár fyrir Stjörnuna og KR. Elfa Björk er gift Sigurði Bjarna Sigurðssyni og eiga þau tvær dætur, 7 og 11 ára. Elfa Björk kemur til starfa til VÍS fyrir miðjan ágúst.

Elfa hefur starfað hjá Sjóvá frá árinu 2009 m.a. sem …
Elfa hefur starfað hjá Sjóvá frá árinu 2009 m.a. sem ráðgjafi hjá Sjóvá Líf, ráðgjafi á tjónasviði vegna ökutækja og persónutrygginga og staðgengill fræðslustjóra.

Jón Ragnar Gunnarsson hefur verið ráðinn í starf viðskiptastjóra í fyrirtækjaráðgjöf VÍS.  Jón Ragnar stundaði nám við Háskóla Íslands í ensku og bókmenntum og lauk einnig kennararéttindum frá Kennaraháskóla Íslands. Jón Ragnar hefur starfað hjá Sjóvá síðustu sextán árin, síðustu sjö árin sem viðskiptastjóri á fyrirtækjamarkaði.  Áður hefur Jón Ragnar starfað sem grunnskólakennari, í ferðaþjónustu sem leiðsögumaður, hjá lögreglunni í Hafnarfirði og hjá slökkviliðinu í Reykjavík. Jón Ragnar er giftur Huldu Sólveigu Jóhannsdóttur og eiga þau þrjú börn á aldrinum 11 – 17 ára.  Hann kemur til starfa til VÍS 1. ágúst.

Jón Ragnar hefur starfað hjá Sjóvá síðustu sextán árin, síðustu …
Jón Ragnar hefur starfað hjá Sjóvá síðustu sextán árin, síðustu sjö árin sem viðskiptastjóri á fyrirtækjamarkaði.
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK