Nýtt flugskýli Icelandair orðið fokhelt

Nýja flugskýlið er vinstra megin við eldra flugskýli Icelandair.
Nýja flugskýlið er vinstra megin við eldra flugskýli Icelandair. Ljósmynd/Icelandair

Nýtt flugskýli Icelandair á Keflavíkurflugvelli hefur risið hratt og er orðið fokhelt. Stefnt er að því að taka það í notkun í október næstkomandi og að verkinu ljúki undir næstu áramót. Icelandair mun frá fyrsta degi fullnýta þá aðstöðu sem skapast í nýja skýlinu fyrir eigin flota og viðskiptavini í tækniþjónustu.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Í nýja skýlinu munu fara fram stærri viðhaldsaðgerðir, en með því er átt við stórar skoðanir sem taka 2-6 vikur ásamt breytingum á flugvélum. Með byggingu skýlisins þrefaldar Icelandair aðstöðu sína til framkvæmdar slíkra verka og getur því flutt flest þeirra til landsins en undanfarin ár hefur Icelandair í auknum mæli þurft að leita sér þessarar þjónustu erlendis vegna stækkandi flugflota.

Eftir að ákvörðun var tekin um byggingu skýlisins hafa þegar orðið til 50-60 langtímastörf og má ætla að annað eins bætist við á næstu misserum og heildarviðbótin sé þannig yfir 100 störf. Þessa dagana verið að auglýsa eftir flugvirkjum og líklegt að ráðnir verði 20-30 til viðbótar við það sem þegar er orðið. „Icelandair hefur stutt við bakið á uppbyggingu flugvirkjanáms á Íslandi og þannig tryggt aðgang að sérmenntuðum starfskröftum,“ segir í tilkynningu.

Þar segir jafnframt að flugskýlið sé byggt til að svara vexti Icelandair undanfarin ár og til framtíðar, en greitt aðgengi að viðhaldsþjónustu eykur öryggi og hagkvæmni með því að byggja upp þekkingu á flugvélum innan fyrirtækisins. Slíkt gerir Icelandair einnig kleift að skapa sér sérstöðu með nýjungum í farþegarými og annarri tækni, en mun sveigjanlegra er að vinna slík verkefni með eigin aðstöðu. Um er að ræða einn umfangsmesta þekkingariðnað á Íslandi, en í dag starfa um 470 manns á tæknisviði Icelandair, þar af um 370 í húsnæðinu við Keflavíkurflugvöll. Stærsti hópurinn er flugvirkjar en einnig er að finna þar á annað hundrað háskólamenntaðra starfsmanna.

Byggingin er um 27 metra hátt stálgrindarhús á steyptum undirstöðum og klædd að utan með einangruðum stálsamlokueiningum. Grunnflötur byggingarinnar er um 10.500 fermetrar og heildarflatarmál hennar um 13.600 fermetrar. Í byggingunni er stærsta  haf í húsbyggingu á Íslandi en þakbitar milli burðarveggja spanna 95 metra.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK