Tölvutek sektað um eina milljón

Málið hófst með erindi Tölvulistans þar sem kvartað var yfir …
Málið hófst með erindi Tölvulistans þar sem kvartað var yfir fullyrðingum um nýjustu eða heitustu græjurnar og betra verð auk þess sem kvartað var yfir því að gefið væri í skyn að fartölvur væru af tiltekinni árgerð. Mynd úr safni. AFP

Neytendastofa hefur lagt stjórnvaldssekt að fjárhæð 1 milljón á tölvuverslunina Tölvutek fyrir að brjóta eldri ákvörðun stofnunarinnar. Málið snýr að fullyrðingu um að Tölvutek sé stærsta tölvuverslun landsins og greint er frá því á vef stofnunarinnar.

Með fyrri ákvörðun Neytendastofu komst stofnunin að þeirri niðurstöðu að Tölvuteki væri heimilt að birta fullyrðinguna ef fram kæmu þær skýringar að átt væri við stærð verslunarrýmis. Tölvutek birti skýringarnar ekki í öllum auglýsingum og því hefur Neytendastofa nú sektað fyrirtækið.

Málið hófst með erindi Tölvulistans þar sem kvartað var yfir fullyrðingum um nýjustu eða heitustu græjurnar og betra verð auk þess sem kvartað var yfir því að gefið væri í skyn að fartölvur væru af tiltekinni árgerð. 

Niðurstaða Neytendastofu var sú að Tölvutek hafi ekki sýnt fram á betra verð og því voru þær fullyrðingar bannaðar. Stofnunin taldi ekki ástæðu til að grípa til aðgerða vegna annarra fullyrðinga. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK