Bréf Haga og Icelandair hækkuðu mest

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Hlutabréf Haga hækkuðu um 2,7% í rúmlega 149 milljóna króna viðskiptum í Kauphöllinni í dag. Þá hækkuðu bréf Icelandair Group um 2,2% í viðskiptum upp á 1,1 milljarð. Marel hækkaði um 1,5% í 156,7 milljóna króna viðskiptum og HB Grandi um 1,3% í 32,6 milljóna króna viðskiptum.

Annars var meira um lækkanir en hækkanir í Kauphöllinni í dag, en þær voru þó ekki miklar. Bréf Fjarskipta lækkuðu til að mynda um 0,8%, Eimskipa um 0,47 og N1 um 0,43%.

Bréf Haga hækkuðu líka í gær en félagið lækkaði töluvert í Kauphöllinni í síðustu viku eftir afkomuviðvörun.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK