WOW air flutti 261 þúsund farþega

Það sem af er ári hefur WOW air flutt yfir …
Það sem af er ári hefur WOW air flutt yfir 1,2 milljónir farþega en það er 124% aukning á sama tímabili frá árinu áður.

Flugfélagið WOW air flutti 261 þúsund farþega til og frá landinu í júní eða um 56% fleiri farþega en í júní árið 2016. Þá var sætanýting WOW air 86% í júní í ár sem er sambærilegt miðað við sama tíma í fyrra þrátt fyrir 54% aukningu á framboðnum sætakílómetrum miðað við sama tímabil í fyrra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá WOW air.

Það sem af er ári hefur WOW air flutt yfir 1,2 milljónir farþega en það er 124% aukning á sama tímabili frá árinu áður.

WOW air flýgur nú til þrjátíu áfangastaða í Evrópu og Norður-Ameríku. Í þessari viku hefst áætlunarflug til Chicago í Bandaríkjunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK