Skiptar skoðanir eru um ástæður þess að krónan hafi veikst á undanförnum vikum, þrátt fyrir gjaldeyrisinnflæði vegna ferðamanna.
Viðmælendur ViðskiptaMoggans benda meðal annars á gjaldeyrisvarnir, erlenda fjárfestingu lífeyrissjóða og grunnan gjaldeyrismarkað sem mögulega áhrifavalda.
Veikingin er aftur á móti talin kunna að draga úr líkum á að áframhald verði á vaxtalækkunarferli Seðlabankans.