Hafnar samruna Haga og Lyfju

Samkeppniseftirlitið hafnaði í dag samruna Haga hf. og Lyfju hf. en þann 17. nóvember í fyrra tilkynntu Hagar um kaup á öllu hlutafé í Lyfju. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Högum til Kauphallarinnar.

Í tilkynningunni kemur fram að kaupsamningurinn hafi verið undirritaður með fyrirvara um niðurstöður áreiðanleikakönnunar og samþykki Samkeppniseftirlitsins. Fyrirvörum vegna niðurstöðu áreiðanleikakönnunar var aflétt í apríl sl., en Samkeppniseftirlitið hefur nú með úrskurði hafnað samrunanum.

„Niðurstaðan er vonbrigði og mun félagið taka hana til sérstakrar skoðunar næstu daga. Þá ber að árétta að Hagar höfðu ekki tekið við rekstri Lyfju og mun ákvörðunin því ekki hafa áhrif á áður birt reikningsskil félagsins,“ segir í tilkynningunni.

Fyrri fréttir mbl.is: 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK