Sektar smálánafyrirtæki um 10 milljónir

E-content er m.a. rekstaraðili smálánafyrirtækisins Kredia.
E-content er m.a. rekstaraðili smálánafyrirtækisins Kredia. Skjáskot

Neytendastofa hefur lagt 10 milljóna króna stjórnvaldssekt á E-content fyrir brot gegn fyrri ákvörðunum stofnunarinnar. E-content er rekstraraðili smálánafyrirtækjanna Kredia, Smálána, 1909, Múla og Hraðpeninga sem Neytendastofa hafði þegar tekið ákvörðun um að brytu gegn lögum um neytendalán með háttsemi sinni.

Greint er frá þessu á vef Neytendastofu.

Þar segir að stofnunin hafi talið að kaupverð bóka, sem lánveitendurnir selja og neytendur þurfa að kaupa til þess að eiga kost á láni, sé í raun kostnaður af láninu.

„Það leiðir til þess að heildarkostnaður af láni gefur árlega hlutfallstölu kostnaðar sem fer langt umfram leyfilegt hámark. Þá var í ákvörðuninni jafnframt tekið að [sic] því að hvorki væru veittar fullnægjandi upplýsingar í stöðluðu eyðublaði sem veita á fyrir samningsgerð né í lánssamningi,“ segir á vef Neytendastofu en ákvarðanir hennar voru kærðar til áfrýjunarnefndar neytendamála sem staðfesti þær í meginatriðum. 
Neytendastofa taldi fyrirtækið ekki sýna fram á að farið hafi verið að ákvörðunum stofnunarinnar.

„Því lagði Neytendastofa stjórnvaldssekt á fyrirtækið. Auk þessa hefur Neytendastofa kveðið á um það að félagið skuli greiða dagsektir verði háttseminni ekki breytt þannig að ákvörðununum sé fylgt,“ segir á vef Neytendastofu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK