Framleiðsluverð lækkað um 10,2% á ári

Vísitala framleiðsluverðs lækkaði um 0,7% milli maí og júní 2017. Afurðir stóriðju lækkuðu um 2,2%, matvæli lækkuðu um 0,2%, sjávarafurðir hækkuðu um 0,1% og annar iðnaður hækkaði um 0,1%. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar.

Þar segir að miðað við júní 2016 hafi vísitala framleiðsluverðs lækkað um 10,2%. Þar af hefur verð sjávarafurða lækkað um 13,8% og annar iðnaður lækkað um 22,8%. Afurðir stóriðju hafa lækkað um 1,4% og matvæli lækkað um 2,3% á sama tímabili. „Sé horft til þess hvort afurðirnar eru fluttar út eða seldar innanlands hafa útfluttar afurðir lækkað um 9,5% á einu ári, en verð afurða seldra innanlands hefur lækkað um 11,6%,“ segir á vef Hagstofunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK