Gjaldþrotabeiðnum fækkaði um 55%

Gjaldþrotum fækkaði í öllum helstu atvinnugreinabálkum. Þar af voru 31 …
Gjaldþrotum fækkaði í öllum helstu atvinnugreinabálkum. Þar af voru 31 gjaldþrot í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og fækkaði þeim frá öðrum ársfjórðungi 2016 úr 64. mbl.is/Ómar Óskarsson

Nýskráningum einkahlutafélaga fækkaði um 11% á öðrum ársfjórðungi 2017, borið saman við annan ársfjórðung 2016. Á sama tímabili fækkaði gjaldþrotabeiðnum fyrirtækja á um 55% frá öðrum ársfjórðungi 2016.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Fram kemur að nýskráningar einkahlutafélaga á öðrum ársfjórðungi 2017 hafi verið 689, þar af 189 í apríl, 258 í maí og 242 í júní. Nýskráningum fækkaði um 11% á öðrum ársfjórðungi 2017, borið saman við annan ársfjórðung 2016 þegar þær voru 771.

Ef litið er á fjölda nýskráninga eftir helstu bálkum atvinnugreina voru flestar nýskráningar í fjármála- og vátryggingastarfsemi (111), byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð (94) og fasteignaviðskiptum (94). Sé borið saman við annan ársfjórðung 2016 fjölgaði nýskráningum úr 52 í 64 í sérfræðilegri, vísindalegri og tæknilegri starfsemi (23%), en fækkaði í flestum öðrum atvinnugreinabálkum, t.d. úr 39 í 21 í landbúnaði, skógrækt og fiskveiðum (46%) og úr 57 í 36 í upplýsingum og fjarskiptum (37%).

2.643 ný einkahlutafélög voru skráð á síðustu 12 mánuðum, frá júlí 2016 til júní 2017, og fjölgaði lítillega frá fyrri 12 mánuðum, þegar nýskráningar voru 2.633.

Gjaldþrotum fækkaði í öllum helstu atvinnugreinum

Á öðrum ársfjórðungi 2017 voru 157 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta, þar af 69 í apríl, 20 í maí og 68 í júní. Gjaldþrotabeiðnum fyrirtækja á öðrum ársfjórðungi 2017 fækkaði um 55% frá öðrum ársfjórðungi 2016, en þá voru þær 352.

Gjaldþrotum fækkaði í öllum helstu atvinnugreinabálkum. Þar af var 31 gjaldþrot í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og fækkaði þeim frá öðrum ársfjórðungi 2016 úr 64 (52% fækkun), og í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum var 31 gjaldþrot og fækkaði þeim úr 66 frá öðrum ársfjórðungi fyrra árs (53% fækkun).

Gjaldþrotabeiðnum fyrirtækja síðustu 12 mánuði, frá júlí 2016 til júní 2017, fækkaði um 16% í samanburði við 12 mánuði þar á undan, en alls voru 716 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu, borið saman við 851 á fyrra tímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK