65 íbúðir í hjarta Mosfellsbæjar

Teikning/ASK arkítektar

Í tillögu að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Mosfellsbæjar er gert ráð fyrir 65 íbúðum á sameinuðum lóðum og eru þær ætlaðar fólki yfir 50 ára. 

Lóðir Háholt 20-24 eru sameinaðar í eina lóð en í stað verslunar- og þjónustuhúss og fjölbýlishúss á lóðum nr. 22 og 24 er gert ráð fyrir þyrpingu fjögurra fjölbýlishúsa með þjónusturými á jarðhæð. 

Tillögur verða til sýnis í þjónustuveri Mosfellsbæjar Þverholti 2, frá 31. júlí 2017 til og með 12. september 2017, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér þær og gert við þær athugasemdir. 

Nánari upplýsingar um tillögurnar má finna á heimasíðu Mosfellsbæjar

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK