Kæra Isavia á ný

Aðalheiður Héðinsdóttir, stjórnarformaður Kaffitárs,
Aðalheiður Héðinsdóttir, stjórnarformaður Kaffitárs, mbl.is/Golli

Stjórnendur Kaffitárs hafa aftur kært Isavia til úrskurðarnefndar um upplýsingamál vegna synjunar ríkisfyrirtækisins á að afhenda gögn um forval fyrirtækisins vegna útleigu á veitingarými í Leifsstöð sem lauk í september 2014. Kaffitár óskar meðal annars eftir því að fá aðgang að upplýsingum sem Isavia hafði sérstaklega strikað yfir. Fréttablaðið greinir frá þessu í dag.

Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í júní í fyrra að afhenda bæri gögn vegna forvalsins sem Kaffitár hafði þá óskað eftir. Stjórnendur Kaffitárs höfðu áður krafist rökstuðnings Isavia fyrir þeirri ákvörðun að neita kaffifyrirtækinu um veitingarými í Leifsstöð. Alls féllu sjö úrskurðir og dómar í málinu og varaði Samkeppniseftirlitið meðal annars við því að afhending gagnanna gæti brotið í bága við samkeppnislög.

Aðalheiður Héðinsdóttir, stjórnarformaður Kaffitárs, segir að Isavia hafi í byrjun ársins afhent þeim einhver gögn sem óskað hafði verið eftir, en hins vegar hafi ríkisfyrirtækið strikað með svörtum tússpenna yfir þær upplýsingar sem fyrirtækinu fannst að Kaffitár ætti ekki að fá aðgang að.

„Þau rök sem Isavia færði fyrir því að neita að afhenda okkur gögnin eru sömu rök og þau settu fram í dómsmálinu í fyrra sem endaði með fullnaðarsigri Kaffitárs og aðför sýslumanns. Nú beita þeir sömu rökum fyrir því að neita okkur um aðgang að þessum viðbótargögnum. Við höfum því lagt fram kæru til úrskurðarnefndar um upplýsingamál sem fjallar nú um málið,“ segir hún í samtali við Fréttablaðið.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK