Björgólfur bætir líka við sig

Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandair Group.
Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandair Group. mbl.is/Styrmir Kári

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, keypti í dag hlutabréf í félaginu fyrir um 7,2 milljónir króna. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar.

Björgólfur keypti 500.000 hluti á genginu 14,33 og eftir viðskiptin í dag á hann 1,9 milljón hluti í félaginu. Fyrr í dag var greint frá því að Bogi Nils Bogason, fjármálastjóri Icelandair Group hafi keypt bréf í félaginu fyrir um 10,6 milljónir króna. Bogi keypti 750.000 hluti í í félaginu á genginu 14,1 og á eftir viðskiptin 1.750.000 hluti.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK