Fjárfestir fyrir 1 milljón Bandaríkjadala í Ghostlamp

Forsvarsmenn Ghostlamp og Brunns fagna samningnum.
Forsvarsmenn Ghostlamp og Brunns fagna samningnum. Aðsend mynd

Kaupsamningur hefur verið gerður á milli Brunns vaxtarsjóðs og Ghostlamp um að Brunnur kaupi hlutafé í félaginu sem styrkir stækkunaráform félagsins næstu árin. Samkomulag varð um sölu hlutafjár upp á 1 milljón Bandaríkjadollara eða því sem nemur tæpum 108 milljónum íslenskra króna og vilyrði um 1 milljón Bandaríkjadollara til viðbótar í fjármögnun, að lágmarki, við áframhaldandi stækkun félagsins. 

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Ghostlamp er markaðstorg á vefnum sem gerir fyrirtækjum og auglýsingastofum kleift að virkja áhrifavalda á samfélagsmiðlum hvar sem er í heiminum. „Auglýsendur búa til herferð inni á www.ghostlamp.com og í framhaldi sendir Ghostlamp út boð á viðeigandi áhrifafólk á samfélagsmiðlum og býður þeim að taka þátt í herferðinni, áhrifavaldar sem samþykkja búa svo til frábært efni fyrir auglýsandann og birta á sínum samfélagsmiðlum. „Fyrirtækið hefur nú um sex milljónir áhrifavalda víðsvegar um heiminn á skrá en þeim fjölgar hratt. Áhrifavaldar eru flokkaðir eftir áhrifum, áhugamálum, búsetu, aldri og kyni. Nú þegar hefur Ghostlamp unnið herferðir í þremur heimsálfum fyrir viðskiptavini víðs vegar um heiminn og stefnt er að velta félagsins verði fjórar milljónir bandaríkjadollara á næstu tólf mánuðum,“ segir í tilkynningunni.

Framkvæmdastjóri og stofnandi félagsins, Jón Bragi Gíslason, er mjög ánægður með samstarfið við Brunn:

„Við höfum byggt upp lausn sem vinnur á allt annan hátt en fyrir er á markaðnum. Auglýsendur geta á mjög auðveldan hátt búið til herferðir á www.ghostlamp.com og fylgst með þeim. Ghostlamp birtir allt efni frá öllum þátttakendum herferðarinnar og árangur í heild sinni á einum stað, algrímur reikna svo út hversu mikið áhrifavaldar fá greitt miðað við áhrif þeirra á hverjum tíma. Að nota Ghostlamp er ekki ósvipað og auglýsendur búa til Google-herferðir og nota Google Analytics fyrir netauglýsingar, nema hjá okkur er miðillinn fólk, áhrifavaldar sem eiga samskipti við þúsundir einstaklinga á hverjum degi. Ghostlamp tryggir að allir áhrifavaldar fái greitt fyrir að deila sköpunargleði sinni, í samstarfi við vörumerki, með fylgjendum sínum. Ghostlamp er frábært verkfæri til að vekja athygli á vörum, þjónustum, viðburðum og mörgu fleiru. Með samstarfi við Brunn fáum við ekki bara fjármagn til að fylgja stækkunaráformum okkar eftir heldur ómetanlega reynslu fólks sem hefur staðið í svipuðum sporum á undan okkur,“ er haft eftir Jóni Braga.

Hjá Ghostlamp starfa nú níu manns á skrifstofum félagsins í Hafnarfirði. Einnig er félagið að hefja starfsemi í Los Angeles, Barcelona og fleiri borgum á næstunni. Ghostlamp var stofnað árið 2014 en árið 2015 fjárfesti PIPAR\TBWA í félaginu og bættist þá Valgeir Magnússon sem meðstofnandi í teymið. Í kjölfarið kom nýtt teymi hugbúnaðarsérfræðinga inn í félagið sem meðstofnendur, þeir Andri Birgisson, Óli Tómas Freysson og Kári Magnússon. Vetragil ehf. fjárfesti svo í félaginu sumarið 2016. Í ágúst 2016 hófst rekstur af fullum krafti hjá félaginu og hefur velta vaxið stöðugt frá þeim tíma.

„Við fjárfestum eingöngu í fyrirtækjum þar sem við sjáum fram á mjög mikinn vöxt og verðmætaaukningu. Einnig þurfa fyrirtækin sem við fjárfestum í að vera skalanleg alþjóðlega. Við höfum fylgst með Ghostlamp núna í rúmlega tvö ár og sjáum að það fyrirtæki á alla möguleika til að stækka hratt og ná alþjóðlegum árangri," er haft eftir Árna Blöndal, hjá SA Framtaki, sem í samvinnu við Landsbréf stjórnar Brunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK