Gray Line hækkar ekki verð vegna útboðs

Gray Line hefur verið með ferðir til og frá Keflavíkurflugvelli …
Gray Line hefur verið með ferðir til og frá Keflavíkurflugvelli frá árinu 2011.

Stjórnarformaður Gray Line gerir ekki ráð fyrir að miðaverð í flugrútu fyrirtækisins muni hækka vegna útboðs á sætaferðum frá Keflavíkurflugvelli sem Isavia stóð fyrir. 

Í gær birti Túristi.is viðtal við Kristján Daníelsson, framkvæmdastjóra Kynnisferða, sem rekur m.a. Flugrútuna, sem sagði óumflýjanlegt að miðasverðið í hana myndi hækka vegna útboðsins.

„Við gerum ekki ráð fyrir að að miðaverð muni hækka. Við ætlum að færa okkur á ytra bílastæðið og halda sömu þjónustu og áður,“ segir Þórir Garðarsson, stjórnarformaður Gray Line í samtali við mbl.is.

Í nýafstöðnu útboði á aðstöðu fyrir sætaferðir frá Keflavíkurflugvelli buðust forsvarsmenn Kynnisferð til að greiða Isavia 41,2% af veltu Flugrútunnar fyrir áframhaldandi veru í og við flugstöðina. Samkvæmt frétt Túrista jafngildir það rúmum þúsund krónum af hverjum seldum miða sé miðað við núverandi verðskrá Flugrútunnar.

Þórir bendir á að Gray Line sé ekki að fara að greiða þá upphæð til Isavia eins og Kynnisferðir og býst því ekki við að verðin muni hækkað. 

Ein ferð með flugrútu bæði Kynnisferða og Gray Line kostar 2.500 krónur, það er ef ferðin er á milli flugvallarins og rútustöðvar, en í tilfelli Gray Line er það rútumiðstöð fyrirtækisins við Holtagarða. Gray Line hóf að bjóða upp á ferðir til og frá Keflavíkurflugvelli árið 2011 en fyrir það höfðu Kynnisferðir verið með einkaleyfi á ferðunum um áratugaskeið.

Þórir Garðarsson, stjórnarformaður Gray Line.
Þórir Garðarsson, stjórnarformaður Gray Line.

Að sögn Þóris hækkaði verðið í 2.500 krónur úr 1.900 krónum með komu virðisaukaskatts á starfsemina í fyrra en fyrir það hafði verðið lítið hækkað frá árinu 2011.

„Samkeppnin hefur haldið aftur af verðhækkunum undanfarin ár en í fyrra kom virðisaukaskatturinn þarna inn og þá hafa verið miklar launahækkanir og hækkanir á afgreiðslugjöldum hjá Isavia.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK