Hagnaður Íslandsbanka dróst saman

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka mbl.is/Ómar Óskarsson

Íslandsbanki hagnaðist um átta milljarða króna fyrstu sex mánuði ársins miðað við 13 milljarða á sama tímabili í fyrra. Munurinn á milli ára skýrist af einskiptishagnaði af sölu Borgunar á hlutum í Visa Europe á fyrri árshelmingi í fyrra að sögn bankans.  Arðsemi eigin fjár var 9,2% á fyrri árshelmingi miðað við 12,9% í fyrra.

Hagnaður bankans af reglulegri starfsemi var 7,4 milljarðar samanborið við 8 milljarða á fyrri árshelmingi 2016

Hreinar vaxtatekjur voru 15,2 milljarðar króna sem er lækkun um 4% milli tímabila.  Vaxtamunur var 2,9% og hefur lækkað lítillega samhliða breyttu vaxtaumhverfi að sögn bankans.

Hreinar þóknanatekjur voru 6,8 milljarðar króna samanborið við 6,7 milljarða króna í fyrra sem er 2% hækkun milli tímabila. Stjórnunarkostnaður var 13,3 milljarðar króna sem er 6% lækkun frá sama tímabili í fyrra.

Heildareignir voru 1.047 milljarðar króna en útlán til viðskiptavina og lausafjársafn voru samtals 97% af stærð efnahagsreiknings. Útlán til viðskiptavina jukust um 4,9% á fyrri árshelmingi í 722 milljarða króna.  Ný útlán voru 108 milljarðar króna sem dreifðust vel milli viðskiptaeininga bankans.

Fimm milljarða hagnaður á öðrum ársfjórðungi

Á öðrum ársfjórðungi 2017 hagnaðist bankinn um 5 milljarða miðað við 9,5 milljarða  í fyrra. Arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi miðað við 15% eiginfjárþátt 1 (CET1) var 11,8% á fjórðungnum en hreinar vaxtatekjur voru 7,8 milljarðar króna og vaxtamunurinn var 3,0%Hreinar þóknanatekjur voru 3,5 milljarðar króna.

„Fyrstu sex mánuðir ársins voru viðburðaríkir í rekstri bankans. Útlán til viðskiptavina jukust um 4,9% frá áramótum en sú aukning kemur frá öllum viðskiptavinahópum. Á sama lækkaði vanskilahlutfall í 1,2% úr 1,8% frá árslokum 2016. Lánveitingar til fyrirtækja í útibúaneti bankans eru 40% til fyrirtækja á landsbyggðinni en það hlutfall hefur verið að aukast undanfarin ár. 

Góður gangur er í fjárfestingarbankastarfsemi og vann fyrirtækjaráðgjöf að mörgum áhugaverðum verkefnum á tímabilinu. Meðal annars var veitt ráðgjöf vegna fyrirhugaðs samruna Iceland Travel og Gray Line og vegna sölu á Icelandic Gadus.

Traustur grunnrekstur skilar bankanum hagnaði upp 7,4 milljarða eftir fyrstu sex mánuði ársins sem er 11,2% arðsemi af reglulegum rekstri og er það lítillega yfir væntingum.

Við kynntum framsæknar skipulagsbreytingar með það að markmiði að gera skipulag bankans að fullu viðskiptavinamiðað. Í september klárast flutningar í nýjar höfuðstöðvar en þá verður öll starfsemi bankans undir einu þaki  en því fylgir mikið kostnaðarhagræði.  Nú þegar prentar starfsfólk helmingi minna en mikil áhersla hefur verið lögð á að draga úr pappírsnotkun í verkefnamiðuðu vinnuumhverfi. Ég er þess sannfærð að með slagkrafti sameinaðra höfuðstöðva sé Íslandsbanki kominn í gott keppnisform,” er haft eftir Birnu Einarsdóttur, bankastjóra Íslandsbanka í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK