Loftleiðir gera samning í Suður-Ameríku

Mynd/Loftleiðir Icelandic

Loftleiðir Icelandic og suðurameríska flugfélagið Latin American Wings hafa gert samning um leigu á Boeing 757-200-þotu frá og með október í vetur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair Group. 

Í tilkynningunni segir að LAW sé flugfélag sem sinni áætlunarflugi til Argentínu, Síle, Dóminíska lýðveldisins, Haítí, Perú og Venesúela. Floti félagsins samanstandi í dag af fimm Boeing 737-300-þotum en með tilkomu samningsins við Loftleiðir Icelandic muni félagið geta hafið flug til New York og Miami í Bandaríkjunum frá Caracas í Venesúela og frá Santiago í Síle.

Boeing 757-þotan sem leigð verður til LAW kemur úr flota Icelandair og verður flogið af flugmönnum Icelandair.

Nýlega var tilkynnt um samning Loftleiða Icelandic við TACV Cabo Verde Airlines og ríkisstjórn Grænhöfðaeyja um samstarf við endurskipulagningu flugfélagsins TACV Cabo Verde Airlines.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK