Skoða stöðu Fjármálaeftirlitsins

Ársfundur Fjármálaeftirlitsins 2017 - Benedikt Jóhannsson fjármálaráðherra var meðal ræðumanna …
Ársfundur Fjármálaeftirlitsins 2017 - Benedikt Jóhannsson fjármálaráðherra var meðal ræðumanna á fundinum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fjármálaráðherra hefur skipað starfshóf sem á að endurskoða lög um eftirlit með fjármálastarfsemi. 

Um er að ræða endurskoðun á lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, lög um
greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi
 auk ákvæða annarra laga um fjármálamarkaði eða fjármálafyrirtæki, tengist þau eftirliti með markaðnum.

Markmiðið með starfi hópsins er að hlutverk, staða og verkefni Fjármálaeftirlitsins verði sett fram með skýrari hætti í lögum en nú er líkt og kveðið er á um í fjármálaáætlun fyrir 2018-2022, segir á vef ráðuneytisins..

Er starfshópnum meðal annars falið að skoða sérstaklega niðurstöður sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins frá í vor þar sem fjallað er um nauðsyn þess að efla eftirlit á fjármálamarkaði hér á landi og að skipulag eftirlits markaðarins verði tekið tekið gagngerrar endurskoðunar.

Starfshópnum er falið að vinna drög að lagafrumvarpi, ásamt skilagrein, og leggja fyrir ráðherra eigi síðar en 15. desember næstkomandi.

Starfshópinn skipa eftirtaldir:

  • Jóhannes Karl Sveinsson hrl., formaður,
  • Guðbjörg Eva Baldursdóttir, lögfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneyti,
  • Haraldur Steinþórsson, lögfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneyti,
  • Leifur Arnkell Skarphéðinsson, lögfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneyti,
  • Tinna Finnbogadóttir, hagfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneyti
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK