Klara ráðin forstöðumaður hjá Icelandair

Ljósmynd/Aðsend

Klara Íris Vigfúsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður flugfreyja og flugþjóna hjá Icelandair. Starfið er á flugrekstrarsviði Icelandair og felst meðal annars í að stýra starfsmannamálum flugfreyja og -þjóna, öryggismálum um borð auk framkvæmdar á allri þjónustu um borð í flugvélum félagsins.

Klara sem er með B.sc. í viðskiptafræði starfaði í sumarafleysingum í flugdeild Icelandair og sem flugfreyja. Hún starfaði síðar á markaðssviði Landsbankans á árunum 2006-2011 og sem framkvæmdastjóri ÍMARK á árunum 2013-2015. Hún starfaði þá við flugrekstur sem aðstoðarmaður forstjóra Iceland Express og framkvæmdastjóri Express ferða og síðar sem  á árunum 2011-2013. Þá var Klara forstöðumaður hjá Úrval/Útsýn árin 2015-2017.

Klara er gift Guðmundi Inga Haukssyni verkfræðingi og eiga þau þrjá syni, en Klara á jafnframt tvö stjúpbörn.  

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK