Nýr eiginleiki kemur Tinder á toppinn

Tinder er vinsælasta stefnumótaforrit í heimi.
Tinder er vinsælasta stefnumótaforrit í heimi.

Stefnumótaforritið Tinder er orðið vinsælasta forritið í Apple store eftir að hafa innleitt nýjan eiginleika sem gerir notendum kleift gegn gjaldi að sjá hverjir hafi þegar sýnt áhuga.

Þessu er greint frá á fréttavef breska ríkisútvarpsins

Hingað til hafa bæði notendur og áskrifendur aðeins getað séð hverja aðra ef báðir aðilar hafa sýnt áhuga. Eftir að nýjungin var kynnt fór Tinder fram úr Netflix og Candy Crush á vinsældalistanum í Bandaríkjum.

Hægt verður að nota nýja eiginleikann með Tinder Gold sem kostar rúmar 500 íslenskar krónur ofan á þær 1.000 krónur sem áskrifendur borga nú þegar en eiginleikinn er ekki tilbúinn fyrir Android-stýrikerfi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK