Bjarni kominn til Jónsson & Lemacks

Bjarni Ólafsson.
Bjarni Ólafsson. Ljósmynd/Haraldur Guðjónsson

Bjarni Ólafsson, fyrrverandi ritstjóri Viðskiptablaðsins, hefur hafið störf hjá auglýsingastofunni Jónsson & Lemacks. Þar mun hann sinna skrifum, almannatengslum og framleiðslu efnis fyrir viðskiptavini stofunnar. 

Bjarni hefur um árabil starfað sem blaðamaður og sérhæft sig í skrifum um viðskipti. Hann var á Viðskiptablaði Morgunblaðsins frá árinu 2005 en færði sig til Viðskiptablaðsins árið 2011. Bjarni tók við ritstjórn Viðskiptablaðsins í janúar 2014 og starfaði sem ritstjóri þar til í júní á þessu ári. 

Hann er stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík og nam lögfræði við Háskóla Íslands. Unnusta hans er Hólmfríður Gísladóttir, blaðamaður á mbl.is.

Auglýsingastofan Jónsson & Lemacks var stofnuð árið 2003. Hjá stofunni starfa rúmlega 40 starfsmenn sem vinna að markaðssetningu og hönnun á öllum stigum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK