Færri íbúðir seljast en í fyrra

Færri fasteignir seldust á höfuðborgarsvæðinu í sumar en á sama tímabili í fyrra þrátt fyrir meiri veltu. Fækkun kaupsamninga var sérstaklega áberandi í ágúst. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá hagdeild Íbúðalánasjóðs.

„Færri fasteignir seldust á höfuðborgarsvæðinu í sumar en í fyrrasumar. Samkvæmt nýbirtum tölum Þjóðskrár Íslands var velta á fasteignamarkaðnum á höfuðborgarsvæðinu á nýliðnu sumri – nánar tiltekið í júní, júlí og ágúst  17,3% meiri en á sama tíma í fyrra.

Það segir þó ekki alla söguna. Þeir kaupsamningar sem standa að baki þessari veltu voru 4% færri í sumar en á sama tíma í fyrra. Meðalupphæð hvers kaupsamnings var þar með 22% hærri. Fækkun kaupsamninga var sérstaklega áberandi í ágúst. 14,4% færri kaupsamningar voru gerðir í nýliðnum ágústmánuði en í sama mánuði í fyrra og veltan var 4,9% minni,“ segir á vef Íbúðalánasjóðs.

Vísbendingar af fasteignamarkaðnum í sumar hafa verið á þá leið að ákveðinnar kólnunar sé að gæta eftir mjög miklar verðhækkanir á fyrri hluta þessa árs, segir þar enn fremur.

„Framboð húsnæðis á sölusíðum hefur aukist og 12 mánaða hækkunartaktur vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu lækkaði úr 24% í maí í 19% í júlí. Nýbirtar tölur Þjóðskrár eru á sömu leið. Þó að verð hafi vissulega hækkað mikið milli ára virðist sem viðskiptum hafi fækkað.

Athygli vekur að kaupsamningum fækkar einnig á milli sumra á sumum svæðum utan höfuðborgarsvæðisins. Þannig voru 17% færri kaupsamningar á Suðurnesjum í sumar heldur en á sama tíma í fyrra. Kaupsamningum fjölgaði hins vegar um 18% á Árborgarsvæðinu og 26% á Vestfjörðum. Þá var mikil fjölgun kaupsamninga í Mosfellsbæ, ef til vill vegna talsverðs framboðs af nýjum íbúðum þar í bæ,“ segir á vef Íbúðalánasjóðs.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK