Tekjur af ferðamönnum 45 milljarðar

Ríki og sveitarfélög fá skerf af ábatanum sem hlýst af …
Ríki og sveitarfélög fá skerf af ábatanum sem hlýst af ferðamönnum. Eggert Jóhannesson

Beinar opinberar tekjur, bæði ríkis og sveitarfélaga, voru 45 milljarðar árið 2015. Þar af voru beinar tekjur ríkissjóðs eingöngu vegna ferðamanna áætlaðir 32 milljarðar en kostnaður einungis 4 milljarðar. Tekjur sveitarfélaga voru 13 milljarðar og kostnaður 2 milljarðar.

Þessar upplýsingar verða meðal efnis sem kynnt verður á málþingi sem Íslenski ferðaklasinn og Festa standa fyrir í Hofi á Akureyri, á morgun, föstudaginn 8. september næstkomandi. Á málþinginu mun skýrsla sem Deloitte gerði fyrir Stjórnstöð ferðamála í sumar verða ítarlega kynnt. Skýrslan er greining á beinum opinberum tekjum og gjöldum vegna ferðamanna árið 2015.

Yfirskrift málþingsins er áhrif ferðaþjónustu á nærsamfélagið og er það ætlað þeim sem hafa með þróun og uppbyggingu ferðaþjónustu að gera, sem eru fyrirtæki, íbúar, menntastofnanir og opinberir aðilar. 

Í tilkynningu um málþingið segir að ljóst sé að ferðamenn hafi víðtækari áhrif á hagkerfið, ýmis afleidd áhrif eru hagræn áhrif sem verði til vegna ferðamanna. Störf í ferðaþjónustu skapi aukin kaupmátt, sem aftur hvetji áfram neyslu og búi til launatekjur sem annars hafi ekki verið til staðar. Ferðaþjónustan geri einnig að verkum að líffskilyrði íbúanna verði betri, þeir geti valið um frekari afþreyingu og veitinghúsaflóran blómstri og skólar haldist opnir.

Afleidd áhrif hafi þannig margföldunaráhrif á fjölgun starfa heima í héraði og þannig geti brottfluttir flutt aftur heim og skapað sér lífsskilyrði nærri fjölskyldunni. Þessi áhrif verði seint metin til fjár.

Áhrifin frá sjónarhóli íbúa

Á málþinginu verða erindi sem einmitt taka á þessum málum. Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, hjá Rannsóknarmiðstöð ferðamála, fjallar um áhrif ferðamanna frá sjónarhóli íbúa, Róbert K. Guðfinnsson, athafnamaður, frumkvöðull og fjárfestir fjallar um áhrif ferðaþjónustu í nærsamfélagi.

Einnig flytja Unnur Valborg Hilmarsdóttir, formaður Ferðamálaráðs Íslands og Markaðsstofu Norðurlands sem er samstarfsaðili að málstofunni. og Matthías Rögnvaldsson, forseti bæjarstjórnar Akureyrar erindi. Fundarstjóri verður Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK