Hagvöxtur 4,3% á fyrri hluta ársins

Einkaneyslan jókst um 9,5% á öðrum ársfjórðungi.
Einkaneyslan jókst um 9,5% á öðrum ársfjórðungi. mbl.is/Sigurður Bogi

Landsframleiðslan á 2. ársfjórðungi 2017 jókst að raungildi um 3,4% frá sama ársfjórðungi fyrra árs. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld, sem eru sam­tala neyslu og fjárfestingar, um 6,7%. Einka­neysla jókst um 9,5%, sam­neysla um 2,8% og fjár­festing um 5,8%. 

Út­flutningur jókst um 8,0% á sama tíma og inn­flutningur jókst um 16,2%. Helstu drifkraftar hagvaxtar er einkaneysla ásamt fjármunamyndun og samneyslu. Árstíðaleiðrétt lands­fram­leiðsla dróst saman að raungildi um 1,1% frá 1. ársfjórðungi 2017.

Landsframleiðslan á fyrstu sex mánuðum ársins 2017 jókst um 4,3% að raungildi borið saman við fyrstu sex mánuði ársins 2016. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld um 5,2%. Einka­neysla jókst um 8,3%, samneysla um 2,2% og fjár­festing um 5,2%. Út­flutningur jókst um 5,2% og inn­flutningur um 10%.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK