Birta útgjöld ráðuneyta í rauntíma

Opnum reikningum er ætlað að veita einfalda og skýra mynd …
Opnum reikningum er ætlað að veita einfalda og skýra mynd af viðskiptum ráðuneyta. mbl.is/Hjörtur

Með opnun vefsíðunnar opnirreikningar.is er hægt að skoða yfirlit yfir greidda reikninga úr bókhaldi ráðuneyta nálægt rauntíma, en vefurinn er uppfærður mánaðarlega. Aðgengi almennings að fjárhagsupplýsingum ríkisins batnar því töluvert og er það í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar um bætt viðmót og aðgengi að stjórnsýslu.

Opnum reikningum er ætlað að veita einfalda og skýra mynd af viðskiptum ráðuneyta með því að birta yfirlit yfir greidda reikninga. Hægt er að skoða viðskiptin út frá stofnunum, birgjum, tegund kostnaðar og tímasetningu. Fyrsti birtingarmánuðurinn er ágúst 201.

Gert er ráð fyrir að stofnanir í A-hluta ríkissjóðs komi inn í verkefnið í áföngum. Þegar verkefnið verður að fullu komið til framkvæmda nemur heildarumfang upplýsinga á vefnum um 45 milljörðum króna á ári.

Þá er einnig unnið að því að birta mánaðarlegt bókhald ríkisins, ráðuneyta og stofnana með skýrum og myndrænum hætti. Með þeirri birtingu verður hægt að skoða gjöld og tekjur út frá ráðuneytum, stofnunum eða málefnasviðum, allt niður á einstök verkefni. Hægt verður að skoða raunútgjöld og bera saman við áætluð útgjöld í fjárlögum ársins.

Er sú birting aukin þjónusta við almenning frá því að ríkisreikningur.is var opnaður árið 2014, en þar er birt sundurliðun á tekjum og gjöldum ríkisins eftir árum og nær birtingin aftur til ársins 2004.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK