Beiðni leikfangakeðjunnar Toys 'R' Us um greiðslustöðvun hefur engin áhrif á verslanir undir því nafni á Íslandi og öðrum löndum á Norðurlöndum þar sem reksturinn byggist á sérleyfi (e. franchise).
Greint var frá því að Toys 'R' Us hefði óskað eftir greiðslustöðvun í dag en fyrirtækið er mjög skuldsett. Aukin viðskipti á netinu hafa reynst leikfangakeðjunni dýrkeypt því mjög hefur dregið úr sölu í verslunum keðjunnar.
Samkvæmt upplýsingum frá Toy 'R' Us á Íslandi eru verslanirnar hér heima í eigu danska fyrirtækisins Top Toy sem leigir vörumerkið frá leikfangakeðjunni í Bandaríkjunum og á allar verslanir undir nafni hennar á Norðurlöndum.
Greiðslustöðvun Toy 'R' Us í Bandaríkjunum hefur því engin áhrif á reksturinn hér heima. Ný verslun Toy 'R' Us verður opnuð í Kringlunni á fimmtudaginn og níu aðrar verslanir verða opnaðar á Norðurlöndum á næstunni.