Loftleiðir Icelandic, dótturfélag Icelandair Group, hefur gert samning um leigu á einni Boeing 737-800-þotu til Polynesean Airlines á Samóaeyjum frá og með nóvember í vetur.
Þotan sem leigð verður til Polynesean Airlines kemur úr flota ítalska flugfélagsins Neos sem leggur einnig til áhafnir.
Nýlega var tilkynnt um samning Loftleiða Icelandic við endurskipulagningu TACV Cabo Verde Airlines og ríkisstjórn Grænhöfðaeyja um samstarf við flugfélagsins TACV Cabo Verde Airlines.
Þá var nýlega tilkynnt um samning Loftleiða Icelandic og Icelandair við Latin American Wings um leigu á einni Boeing 757-200 í vetur. Fallið hefur verið frá því verkefni.