Akureyrarbær opnar bókhaldið

Bæjarfulltrúarnir Gunnar Gíslason, Sóley Björk Stefánsdóttir og Guðmundur Baldvin Guðmundsson …
Bæjarfulltrúarnir Gunnar Gíslason, Sóley Björk Stefánsdóttir og Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður bæjarráðs, ásamt Eiríki Birni Björgvinssyni bæjarstjóra og Dan Jens Brynjarssyni sviðsstjóra fjársýslusviðs Akureyrarbæjar. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Akureyrarbær hefur ákveðið að opna bókhaldið og gera það aðgengilegt á heimasíðu bæjarins. Þar verður framvegis hægt að skoða útgjaldaliði bæjarins, hvaða greiðslur hafa verið inntar af hendi og til hverra, hver kostnaður er og hefur verið við einstaka málaflokka, verkefni og deildir.

Einnig verður hægt að bera saman kostnaðarliði á milli ára á aðgengilegan og myndrænan hátt, að því er kemur fram í frétt á heimasíðu Akureyrar

Þar segir að bókhaldið sé brotið niður í fimm liði á heimasíðunni og þar sé hægt að skoða tekjur og gjöld fyrri A- og B-hluta sjóða, auk þess að greina gjöld eftir bókhaldsliðum. Opnun bókhaldsins á heimasíðunni sé liður í innleiðingu rafrænnar stjórnsýslu hjá Akureyrarkaupstað.

„Þetta er mjög jákvætt skref í að efla gagnsæi og aðgangi að opinberum upplýsingum. Þróun í hugbúnaði hefur í dag einnig hjálpað okkur að birta þessar upplýsingar með auðveldari hætti en áður. Opnun bókhaldsins er jafnframt enn eitt skrefið í rafrænni stjórnsýslu hjá sveitarfélaginu og sú þróun mun halda áfram,“ er haft eftir Eiríki Birni Björgvinssyni bæjarstjóra í tilkynningunni. 

Þar með fylgir Akureyrarbær í fótspor Reykjanesbæjar og Hafnarfjarðarbæjar sem hafa nýlega tekið upp á að opna bókhaldið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK