Ísland hafi dottið í lukkupottinn

Segja má að Ísland hafi unnið stóra vinninginn þegar miklar launahækkanir vegna kjarasamninga skiluðu sér ekki út í verðlagið en ólíklegt er að það verði jafnheppið aftur. Þetta kemur fram í Markaðspunktum greiningardeildar Arion banka

Þar er rakið að árið 2015 hafi litast talsvert af kjaradeilum á íslenskum vinnumarkaði. Samið hafi verið um launahækkanir sem hafi verið vel umfram spár um framleiðniaukningu og verðbólgumarkmið Seðlabankans. Þvert á væntingar flestra um að verðbólguskot fylgdi í kjölfarið hefði kaupmáttur aukist til muna.

„Ef laun hækka meira en það sem samsvarar verðmætaaukningu, eða framleiðni, þá þýðir það að launakostnaður á framleidda einingu hækkar – það er dýrara að framleiða eina einingu en áður að öðru óbreyttu. Í þessu samhengi er gjarnan talað um launaverðbólgu en hún leiðir nær alltaf til hækkunar verðlags.“

Rifjaðar eru upp kjaraviðræðurnar 2011 en þá var samið um almenna launahækkun upp á 11,4% fyrir samningstímabilið, sem var þrjú ár. Í kjölfarið tók verðbólga að stíga á ný, eftir örstutt stopp undir verðbólgumarkmiði Seðlabankans, og var komin yfir 6% í ársbyrjun 2012. Nú hefur kaupmáttur hins vegar vaxið um 19% frá janúar 2015. Ef húsnæðisliðurinn, sem undanfarið hefur drifið verðbólguna áfram, er undanskilinn hefur kaupmáttur launa aukist um 27% frá ársbyrjun 2015.

Úr Markaðspunktum greiningardeildar Arion banka.

Fyrir þessu nefnir greiningardeildin fimm ástæður:

  • Viðskiptakjarabati vegna verðlækkunar á olíu og verðhækkunar á sjávarafurðum
  • Verðlækkun innfluttra vara vegna styrkingar krónunnar.
  • Aukin samkeppni vegna komu stórra alþjóðlegra fyrirtækja á markað.
  • Svigrúmið sem skapaðist vegna lækkunar raunlauna eftir bankahrunið og óvenjumikinn framleiðnivöxt í fyrra.
  • Fordæmalaus vöxtur ferðaþjónustunnar sem hefur skapað fjölda nýrra starfa sem komu til móts við hagræðingaraðgerðir í kjölfar síðustu kjarasamninga.

„Það mætti segja að Íslendingar hafi unnið stóra vinninginn; launahækkanirnar hafa ekki skilað sér út í verðlagið, atvinnuþátttakan hefur sjaldan verið meiri og á sama tíma hafa vextir lækkað. Það þýðir þó ekki að hægt sé að endurtaka leikinn, enda voru aðstæður um margt óvenjulegar og fleiri þættir en íslensk ákveðni er lögðu hönd á plóg og hlupu undir bagga með innlendum fyrirtækjum þegar mest á reyndi.“

Laun á Íslandi með þeim allra hæstu

Enn fremur segir að ekki sé hægt að reiða sig á áframhaldandi styrkingu krónunnar þar sem mesti vöxturinn í ferðaþjónustu sé líklega liðinn. Launahækkanir undanfarinna ára hafi gert það að verkum að laun á Íslandi séu með því allra hæsta sem gerist. 

„Á sama tíma er framleiðni hér á landi áþekk meðaltali OECD-landanna, sem grefur verulega undan samkeppnishæfni landsins. Verði hækkun launakostnaðar langt umfram framleiðnivöxt verður eitthvað undan að gefa, sem í íslenskri hagsögu hefur yfirleitt þýtt gengisfall með tilheyrandi verðbólguskoti.“

Úr Markaðspunktum greiningardeildar Arion banka.
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK