Hefja hátækni-þörungarækt

Hreint vatn, orka og aðgengi að koltvísýringi er forsenda framleiðslunnar.
Hreint vatn, orka og aðgengi að koltvísýringi er forsenda framleiðslunnar. mbl.is/Brynjar Gauti

Ísraelskt sprotafyrirtæki á sviði líftækni, Algaennovation, í samvinnu við íslenska fjárfesta hyggst byggja hér og starfrækja eitt afkastamesta framleiðslufyrirtæki í heimi á sviði smáþörungaræktar.

Fyrstu árin mun áherslan verða á framleiðslu frumfóðurs fyrir klakstöðvar í fiskeldi, að því er fram kemur í umfjöllun um áform þessi í ViðskipaMogganum í dag.

Íslenskir fjárfestar hafa nú þegar lagt verkefninu til 3,5 milljónir dollara í hlutafé, jafnvirði tæplega 370 milljóna króna, og unnið er að viðbótarfjármögnun fyrir allt að 3,5 milljónum dollara fyrir fyrsta áfanga framkvæmda. Gert er ráð fyrir því að eftir fimm ár muni árstekjur verksmiðjunnar verða um 70 milljónir dollara, sem samsvarar um 7 milljörðum króna. Í upphafi mun árleg framleiðsla hlaupa á tugum tonna en á sjötta ári verður framleiðslan komin í 900 tonn, herma heimildir blaðsins. Arctica Finance eru ráðgjafar Algaennovation í fjármögnun verkefnisins.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK