Sigríður tekur við stjórn Birtíngs

Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir, nýr framkvæmdastjóri Birtíngs.
Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir, nýr framkvæmdastjóri Birtíngs.

Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir hefur tekið við sem framkvæmdastjóri útgáfufélagsins Birtíngs, en hún var áður sölustjóri félagsins. Tekur hún við af Karli Steinari Óskarssyni sem óskaði eftir því að láta af störfum.

Birtíngur gefur út tímaritin Vikuna, Gestgjafann, Hús og híbýli og mánaðarlega fríblaðið Mannlíf.

Karl leiddi fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækisins, en samkvæmt tilkynningu kemur fram að þeirri vinnu sé nú lokið og að hann hafi talið tímabært að breyta til. Nú þegar endurskipulagningu á rekstri Birtíngs er að mestu lokið fannst mér kominn tími til þess að hverfa á önnur mið. Ég hef verið í brúnni í ólgusjó í nokkurn tíma og hef öðlast mikla og dýrmæta reynslu í rekstri fyrirtækis í krefjandi umhverfi,” er haft eftir Karli Steinari.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK