Hallinn eykst um tugi milljarða

Frá ársbyrjun hafa verið fluttar út vörur fyrir 372 milljarða króna en inn fyrir 508 milljarða og var því halli á vöruviðskiptum við útlönd upp á 136 milljörðum króna. Á sama tíma árið áður voru vöruviðskiptin óhagstæð um 90 milljarð á gengi hvors árs.

Vöruviðskiptahallinn á fyrstu níu mánuðum ársins var því 46,1 milljarði króna hærri en á sama tíma árið áður að því er kemur fram í frétt á vef Hagstofunnar

Í september voru fluttar út vörur fyrir 45 milljarða króna og inn fyrir 65,6 milljarða króna. Vöruviðskiptin í september voru því óhagstæð um 20,6 milljarða króna en í september 2016 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 3,3 milljarða króna á gengi hvors árs.

Útflutningur á lyfjum og lækningatækjum dróst saman en útflutningur á áli jókst. Sjávarafurðir voru 38,8% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 18,5% lægra en á sama tíma árið áður. Mestur samdráttur var í útflutningi á frystum flökum og ferskum fiski,“ segir í frétt Hagstofunnar.

Þá jókst innflutningur á  hrá- og rekstrarvörum, skipum og fólksbílum en á móti dróst innflutningur á flugvélum saman.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK