Fjárfestu fyrir meira en milljarð

Hvíti ramminn á myndinni sýnir lóðina á Grundartanga þar sem …
Hvíti ramminn á myndinni sýnir lóðina á Grundartanga þar sem til stóð að Silicor Materials reisti sólarkísilverksmiðju. Ekki verður af áformunum.

Félag, sem er að stærstum hluta í eigu íslenskra lífeyrissjóða, hefur keypt hlutafé fyrir 1.350 milljónir króna vegna uppbyggingar sólarkísilvers sem Silicor Materials vill reisa hér á landi.

Uppsafnað tap íslenska hlutafélagsins Silicor Materials Holding nam 2,7 milljörðum króna í árslok 2016 en fyrirtækið hefur ekki tryggt sér raforku, lóð eða fjármögnun sem upp á vantar. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu og Vísi í dag.

„Við höfum ekki afskrifað þessa fjárfestingu og það eru góðir möguleikar á borðinu. Einn þeirra, sem við erum að vinna í, er að byggja verksmiðju á Íslandi í annarri útfærslu,“ segir Ómar Örn Tryggvason, stjórnarformaður samlagshlutafélagsins Sunnuvalla sem er í eigu fjögurra lífeyrissjóða, Íslandsbanka og Sjóvár, í samtali við Fréttablaðið.

Sunnuvellir er stærsti einstaki eigandi Silicor Materials Holding með 32 prósenta hlut. Að því félagi koma Lífeyrissjóður verslunarmanna, Birta lífeyrissjóður, Lífeyrissjóður Vestmannaeyja og Festa lífeyrissjóður.

Tap Sunnuvalla í fyrra nam 831 milljón króna og þar af voru 715 milljónir vegna eignarinnar í Silicor Materials. 

Líkt og fram kom í Morgunblaðinu í september er Silicor Materials  ekki hætt við áform um uppbyggingu kísilverksmiðju á Grundartanga þrátt fyrir að fyrirtækið hafi fallið frá samningum við Faxaflóahafnir um lóð og hafnaraðstöðu.

Michael Russo, forstjóri fyrirtækisins, segir í samtali við Morgunblaðið að ákveðið hafi verið að hægja á undirbúningnum og fjármögnun verkefnisins hefur verið tekin til endurskoðunar.

„Við þurftum að taka eitt eða tvö skref til baka og endurmeta stöðuna en við höfum fullan hug á að halda verkefninu áfram, því hefur ekki verið hætt,“ segir Russo um fjármögnunina en erfiðara reyndist að fjármagna verkefnið en Silicor Materials taldi í fyrstu. Heildarfjárfesting United Silicor var metin á um 900 milljónir dollara eða 95 milljarða króna og átti að skapa 450 störf.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK