Eyjólfur Örn ráðinn forstöðumaður verðbréfamiðlunar

Eyjólfur Örn Jónsson, forstöðumaður verðbréfamiðlunar Íslandsbanka.
Eyjólfur Örn Jónsson, forstöðumaður verðbréfamiðlunar Íslandsbanka.

Eyjólfur Örn Jónsson hefur verið ráðinn forstöðumaður verðbréfamiðlunar Íslandsbanka. Eyjólfur hefur verið forstöðumaður afleiðu- og gjaldeyrisborðs Íslandsbanka en starfaði áður við markaðsviðskipti og í fjárstýringu bankans. Hann hefur setið í stjórn ALM Verðbréfa og GAMMA.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.

Eyjólfur er menntaður véla- og iðnaðarverkfræðingur frá Háskóla Íslands og hefur einnig lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

Verðbréfamiðlun heyrir undir Fyrirtæki og fjárfesta, nýtt svið sem þjónar bæði fjárfestum og stærri fyrirtækjum. Fyrirtæki og fjárfestar er eitt af þremur viðskiptasviðum Íslandsbanka, að því er segir ennfremur í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK