Semja og útsetja fyrir Star Wars

AFP

Stiklutónlistarfyrirtækið Pitch Hammer Music, sem er í eigu Veigars Margeirssonar, listræns stjórnanda fyrirtækisins, konu hans Sigríðar Rögnu Jónasdóttur, og Brians Brashers, hefur verið fengið til að semja og sérútsetja tónlist í markaðsefni fyrir nýjustu Stjörnustríðskvikmyndina.

Myndin, Star Wars: The Last Jedi, verður frumsýnd hér á Íslandi 14. desember nk. Um er að ræða tónlist í stiklur úr kvikmyndinni sem nú þegar er byrjað að sýna í sjónvarpi í Bandaríkjunum. Veigar segir að keppinautar þeirra bíði í röðum eftir að komast inn hjá Disney.

„Það er allt annað en auðvelt,“ segir Veigar í samtali við ViðskiptaMoggann í dag þar sem nánar er fjallað um málið. 

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK