Lykill ehf. í söluferli

Lykill starfar á sviði eignafjármögnunar og fjármagnar meðal annars bílakaup.
Lykill starfar á sviði eignafjármögnunar og fjármagnar meðal annars bílakaup.

Klakki ehf., eigandi Lykils fjármögnunar hf., hefur ákveðið að hefja opið söluferli á félaginu. Stefnt er að því að nýir eigendur taki við félaginu á vormánuðum 2018. Norræni fjárfestingarbankinn Beringer Finance hefur umsjón með söluferlinu en bankinn varð hlutskarpastur í valferli Klakka sem fram fór fyrr á þessu ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Lykill starfar á sviði eignafjármögnunar og fjármagnar bíla- og tækjakaup. Félagið, sem starfar undir starfsleyfi sem fjármálafyrirtæki, var stofnað árið 1986, en höfuðstöðvar þess eru í Ármúla 1.

Klakki er eignarhaldsfélag í eigu innlendra og erlendra fjárfesta. Lykill er í dag langstærsta eign Klakka en flestar aðrar eignir félagsins, s.s. VÍS og Skipti, hafa verið seldar á síðustu árum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK