Milljarðar lagðir í Rafnar

Báturinn Askur er af tegundinni Leiftur 1100. Hann er nýkominn …
Báturinn Askur er af tegundinni Leiftur 1100. Hann er nýkominn frá Mónakó þar sem hann hefur verið til sýnis í haust. Ljósmynd/Þorsteinn Sigurbjörnsson

Fyrirtækið Rafnar, sem smíðar báta á grundvelli uppfinningar Össurar Kristinssonar stoðtækjasmiðs, vinnur nú að samstarfssamningum við rótgróin fyrirtæki í Bandaríkjunum og Kanada.

Stefna fyrirtækin á smíði báta úr áli, sem byggjast á fyrrnefndri hugmynd. Með smíðinni er ætlunin að taka þátt í stórum útboðum sem hermála- og löggæsluyfirvöld ásamt strandgæsluliði í löndunum standa fyrir og leitt gætu til samninga um smíði tuga eða hundraða báta.

Össur segir að reynslan af hinu byltingarkennda skrokklagi, sem fyrirtækið byggir grundvöll sinn á, muni breyta siglingaheiminum til frambúðar. Eiginleikar þess hafi yfirburði yfir aðra hönnun á markaðnum bæði hvað orkunýtingu, hraða og öryggi varðar.

Í viðtali í  ViðskiptaMogganum í dag lýsir hann því hvað geri báta fyrirtækisins einstaka í sinni röð.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK