Kristrún ráðin aðalhagfræðingur Kviku

Kristrún Mjöll Frostadóttir, aðalhagfræðingur Kviku banka.
Kristrún Mjöll Frostadóttir, aðalhagfræðingur Kviku banka. Ljósmynd/Aðsend

Kristrún Mjöll Frostadóttir hefur verið ráðin aðalhagfræðingur Kviku banka og mun hún hefja störf um miðjan janúar næstkomandi.

Í tilkynningu frá Kviku segir að um sé að ræða nýtt starf sem miði að því að efla efnahagsgreiningu innan Kviku og styrkja þjónustu við viðskiptavini. Aðalhagfræðingur mun jafnframt vera talsmaður bankans vegna mála sem snúa að fjármálamarkaði og efnahagsmálum.

Síðastliðið ár hefur Kristrún starfað sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands og tekið þátt í að móta málefnastarf ráðsins, en þangað kom hún frá bandaríska fjárfestingarbankanum Morgan Stanley. Þar vann hún sem sérfræðingur í greiningardeild, fyrst í New York og síðan í London. Sérsvið Kristrúnar í London sneri að greiningu á evrópskum netverslunarfyrirtækjum. Í New York sinnti hún greiningarvinnu í tengslum við bandarísk eignastýringar- og orkufyrirtæki.

Þá hefur Kristrún starfað meðal annars sem hagfræðingur í greiningardeild Arion banka og sem blaðamaður á Viðskiptablaðinu. Hún gegnir formennsku í verðlagsnefnd búvara hjá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu og hefur áður starfað sem hagfræðingur í starfshóp á vegum forsætisráðuneytisins.

Kristrún er með meistaragráðu í alþjóðafræðum frá Yale-háskóla í Bandaríkjunum, með áherslu á hagstjórn og alþjóðafjármál, og meistaragráðu í hagfræði frá Boston-háskóla. Þá er hún með BS-próf í hagfræði frá Háskóla Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK