Ný Arnarhlíð tekin að mótast við Valssvæðið

Teikning/Alark arkitektar

Vinna við að steypa lyftuhús og stigaganga er hafin á svonefndum D-reit á Hlíðarenda í Reykjavík. Alls 142 íbúðir verða á D-reit, eða 7 fleiri en áður var áætlað.

Kristján Ásgeirsson, arkitekt hjá Alark arkitektum, hefur unnið að hönnun á D-reit. Spurður um hönnun á reitnum segir Kristján óvenjulegt að húsin fylla alveg út í lóðina.

„Þetta er ekki hefðbundin fjölbýlishúsalóð með bílaplani. Þarna stendur húsið á allri lóðinni og með inngarði. Bílastæðin eru á tveimur hæðum í kjallara. Það er því búið að flytja bílastæðalóðina neðanjarðar,“ segir Kristján í samtali við Morgunblaðið í dag. 

Lögmaður lóðarhafa á D-reit áætlaði í bréfi til skipulagsyfirvalda í borginni sl. vor að fermetraverð íbúða á reitnum yrði um 580 þúsund krónur. Samkvæmt því mun 100 fermetra íbúð kosta 58 milljónir.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK